Hvati.is | Fjölskyldan Vestmannabraut 37

03.10.2010

Embla Dís skírð

Filed under: Uncategorized — admin @ 22:26

Klukkan tólf í dag var Embla Dís Sighvatsdóttir skírð í Landakirkju Vestmannaeyja. Í kjölfarið var skírnarveisla á Volcano Café þar sem ættingjar og vinir fögnuðu tímamótunum með okkur. Hér að neðan eru nokkrar myndir frá frábærum degi, Þórir frændi fær sérstakar þakkir fyrir frábæra myndatöku í kirkjunni. :-) Takk kærlega fyrir fallegar gjafir og hlýjar hugsanir elskurnar. Góðir straumar yljuðu okkur um hjartarætur og munu gera áfram, svo vitnað sé í bæn foreldra fyrir nýfæddu barni (sem er hér í heild sinni):

Við biðjum þig, algóði faðir, að vaka yfir því og vaka yfir okkur, svo við getum með þinni hjálp annast það vel og stutt því til þroska. Göfga þú ást okkar, helga dagfar okkar og heimilislíf, svo að helgur andi þinn umvefji þetta barn, veki og glæði allt gott, sem þú hefur fólgið í sálu þess.

DK: Klokken 12 islandsk tid i dag blev Embla Dís Sighvatsdóttir døbt í Landakirke her på Vestmannaøerne. Vi havde en fantastisk dag med vores familier og venner. Nogle billeder fra kirken og dåbsfesten følger.

US: Embla Dís Sighvatsdóttir was christened in the church here on the Westman Islands (Landakirkja) today at noon icelandic time. Here you can see some pictures from this wonderful day we had with our families and friends.

Love all over the world,
Sighvatur, Dóra Hanna, Gabríel, Elmar Elí and Embla Dís :-)

30.09.2010

Gabríel 12 ára – myndband

Filed under: Uncategorized — admin @ 15:52

Frumburðurinn Gabríel átti 12 ára afmæli í fyrradag, hér er stutt myndband með afmælissöng fjölskyldunnar og gjafaopnun klukkan sjö um morguninn. :-)

[Ef spilarinn fyrir neðan virkar ekki geturðu sótt .mp4 skrá]

Njóttu lífsins,
Sighvatur og fjölskylda

20.09.2010

Eins mánaðar afmæli – myndband

Filed under: Uncategorized — admin @ 23:31

Fyrst telur maður nýtt líf í sekúndum, mínútum, klukkustundum, dögum – og svo staldrar maður við í vikum og mánuðum um nokkurn tíma áður en hægt er að telja í árum. Nú er prinsessan (sem bráðum verður skírð) orðin rúmlega eins mánaðar, hún verður 6 vikna næsta miðvikudag. 11. september síðastliðinn tók ég nokkur skot af henni og strákunum í tilefni þess að mánuður var liðinn frá fæðingunni.

[Ef spilarinn fyrir neðan virkar ekki geturðu sótt .mp4 skrá]

Njóttu lífsins,
Sighvatur og fjölskylda

26.08.2010

Tveggja vikna afmæli – myndband

Filed under: Uncategorized — admin @ 11:10

Í gær varð prinsessan okkar tveggja vikna. Af því tilefni fylgir fyrsta myndbandið af stúlkunni. :)
[Ef spilarinn fyrir neðan virkar ekki geturðu sótt .mp4 skrá]

Njóttu lífsins,
Sighvatur og fjölskylda

17.08.2010

Fyrstu dagar dótturinnar

Filed under: Uncategorized — admin @ 22:38

Hér eru nýjar myndir af fyrstu dögum dótturinnar á Vestmannabraut 37. Allt gengur eins og í sögu, hún drekkur, svefur og skilar af sér með sóma :) Ég minni á að til að skoða myndatexta þarf að velja i-takkann (info) hægra megin í myndasýningunni. FS stendur svo fyrir sýningu í fullri stærð (fullscreen). Undir „All categories“ neðst vinstra megin má skoða fyrsta albúmið líka.

Prinsessukveðjur úr hreiðrinu :-)
Sighvatur og fjölskylda

11.08.2010

Halló heimur – prinsessa er fædd :)

Filed under: Uncategorized — admin @ 23:44

Við hjónin og drengirnir tveir urðum þeirrar stórkostlegu gæfu aðnjótandi að fá prinsessu í fjölskylduna þegar dóttir okkar Dóru Hönnu kom í heiminn þriðjudaginn 11. ágúst 2010 kukkan 01:22 eftir miðnættið. Stúlkan vó 3.962 grömm (tæpar 16 merkur) og var 52 sentímetrar að lengd.

Eins og gefur að skilja er nóg að snúast vegna þessa gleðiatburðar en fjölskyldufaðirinn gaf sér þó tíma til að endurlífga gömlu fjölskyldusíðuna með nokkrum myndum frá fyrsta sólarhring nýju Eyjapæjunnar okkar. Myndaforritið hér að neðan fann ég tilbúið á netinu og mér þykir þörf á því að láta eftirfarandi upplýsingar fylgja um virkni þess.

-ýttu á bókstafinn i uppi hægra megin til að lesa myndatexta
-ýttu á SL takkann niðri hægra megin til að virkja/afvirkja myndasýningu („slideshow“)
-ýttu á FS takann niðri hægra megin til að virkja/afvirkja sýningu í fullri stærð („fullscreen“)
-PGC takkinn er tengill á framleiðendur myndasýningarinnar, http://www.photogallerycreator.com/

Njóttu lífsins – það gerum við :o
Sighvatur

10.08.2010

Prufa – myndband

Filed under: Uncategorized — admin @ 14:02

Stærri útgáfa af myndbandinu – þetta er 5 mbps vs. 2 mbps í nýjasta pósti eftst á síðunni (.mp4 skrá). /SJ

« Newer Posts

Powered by WordPress