Hvati.is | Fjölskyldan Vestmannabraut 37

11.08.2010

Halló heimur – prinsessa er fædd :)

Filed under: Uncategorized — admin @ 23:44

Við hjónin og drengirnir tveir urðum þeirrar stórkostlegu gæfu aðnjótandi að fá prinsessu í fjölskylduna þegar dóttir okkar Dóru Hönnu kom í heiminn þriðjudaginn 11. ágúst 2010 kukkan 01:22 eftir miðnættið. Stúlkan vó 3.962 grömm (tæpar 16 merkur) og var 52 sentímetrar að lengd.

Eins og gefur að skilja er nóg að snúast vegna þessa gleðiatburðar en fjölskyldufaðirinn gaf sér þó tíma til að endurlífga gömlu fjölskyldusíðuna með nokkrum myndum frá fyrsta sólarhring nýju Eyjapæjunnar okkar. Myndaforritið hér að neðan fann ég tilbúið á netinu og mér þykir þörf á því að láta eftirfarandi upplýsingar fylgja um virkni þess.

-ýttu á bókstafinn i uppi hægra megin til að lesa myndatexta
-ýttu á SL takkann niðri hægra megin til að virkja/afvirkja myndasýningu („slideshow“)
-ýttu á FS takann niðri hægra megin til að virkja/afvirkja sýningu í fullri stærð („fullscreen“)
-PGC takkinn er tengill á framleiðendur myndasýningarinnar, http://www.photogallerycreator.com/

Njóttu lífsins – það gerum við :o
Sighvatur

4 Comments

  1. Svo má endilega skilja eftir kveðjur hér í athugasemdadálkinum :)

    Comment by Sighvatur Jónsson — 12.08.2010 @ 04:09

  2. Ekkert smá gaman að skoða þessar myndir :) gangi ykkur svakalega vel :* og hafið það sem best
    saknaðarkveðjur frá Dk
    Harpan

    Comment by Harpan og co í dk — 12.08.2010 @ 08:42

  3. Hæ hæ

    Innilega til hamingju með myndarlegu stelpuna, ekki smá flott:) Stelpur fæddar á þessum degi eru gáfaðar, fallegar og skemmtilegar:) Get staðfest það þar sem ég á eina sjálf;)

    Kristjönu fannst mjög merkilegt að heyra að hún hefði eignast frænku á afmælisdaginn sinn.

    Bestu kveðjur frá okkur
    Ingibjörg, Emil og Kristjana Lind

    Comment by Ingibjörg Reynisdóttir — 12.08.2010 @ 11:32

  4. Vá fallega fólk til hamingju með litlu dömuna hún er gullfalleg :) þið eruð svo flott:) Gangi ykkur rosalega vel með hana það er nú ekki amalegt að hafa 2 brósa til að dekstra sig og snúast í kring um sig :O)

    Bestu kveðjur frá Ísó Ólöf og co

    Comment by Ólöf Öfjörð — 12.08.2010 @ 14:26

RSS feed for comments on this post.

Sorry, the comment form is closed at this time.

Powered by WordPress